Í næsta vísindaporti verður Bryndís Eva Birgisdóttir prófessor í næringarfræði með fyrirlestur.
Hér verður farið yfir víðan völl tengt rannsóknum á mataræði og heilsu. Þá verður sérstaklega horft
til þess hvernig sjálfbærni hefur verið fléttað inn í nýjar ráðleggingar um mataræði. Það á til dæmis
við um nýjar Norrænar næringarráðleggingar sem kynntar voru á Íslandi í sumar í kjölfar margra ára
vísindavinnu norrænna sérfræðinga (https://pub.norden.org/nord2023-003/) . Hvernig horfa slíkar
ráðleggingar við áheyrendum? Hvaða þættir geta hugsanlega hindrað og hvaða þættir geta
hugsanlega stutt við breytingar á mataræði í þessa átt?
Síðustu mínútúr erindisins fer fram lítil gagnvirk vinnustofa í kringum efnið en fyrirlesari verður
einnig á staðnum eftir fundinn og ræðir málin gjarnan áfram.
Bryndís Eva Birgisdóttir er prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands. Eftir meistaranám í klínískri
næringarfræði frá Háskólanum í Gautaborg í Svíþjóð lauk Bryndís Eva doktorsnámi við
raunvísindadeild Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar beinast að tengslum næringar við bæði
líkamlega og andlega heilsu, meðal annars í gegnum þarmaflóru, með bæði íslenskum
vísindamönnum og í gegnum öflugt alþjóðlegt samstarf. Þá hefur Bryndís mikinn áhuga á þeim
fjölmörgu þáttum sem hafa áhrif á hvað við borðum, en til að afhjúpa þá leyndardóma er mikilvægt
að skoða fæðukerfið í heild.
Vísindaportið fer fram í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða á 2. hæð og stendur yfir frá kl. 12.10 til 13.00.