Upplýsingafundur fyrir fjarnema á Vestfjörðum

Háskólasetur Vestfjarða þjónustar fjarnema á Vestfjörðum í háskólanámi. Upplýsingafundur verður haldinn miðvikudaginn 11. október kl 17:00 þar sem rætt verður meðal annars um aðstöðu og próf. Fundurinn fer fram á zoom en einnig býðst fjarnemum að mæta á fundinn í Háskólasetri á annari hæð í kaffistofu. Hægt verður að ræða við bæði kennslustjóra og verkefnastjóra fjarnáms eftir fundinn og boðið verður upp á kaffi. Zoom link má finna hér:

 

https://eu01web.zoom.us/j/61883808488

 

Meeting ID: 618 8380 8488