Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda

Vilt þú hafa áhrif á mótun stefnu í málefnum innflytjenda? Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið vinnur nú í fyrsta sinn að slíkri framtíðarsýn og býður því til samtals hringinn í kringum landið. Stefnt er að því að innflytjendur hafi aukin tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og eru þeir því sérstaklega hvattir til að mæta og ræða þau sem mál sem þessu tengjast og liggja þeim á hjarta. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið verður á Ísafirði miðvikudaginn 29. nóvember í Edinborgarhúsinu frá 17:00-19:00. Fundurinn verður túlkaður yfir á ensku og pólsku, verið hjartanlega velkomin!