Hnallþórukaffi: Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu á sér stað 16. nóvember og af því tilefni býður Háskólasetur
Vestfjarða og Gefum íslensku séns í Hnallþórukaffi í Háskólasetri Vestfjarða klukkan 17:30 á annari hæð á kaffistofu. Hin eina sanna Gunna Sigga sér um kökugerð og boðið verður upp á ljóðasmiðju fyrir áhugasama. Einnig mun skáldið Helen Cova lesa ljóð sín og verk.

Á degi íslenskrar tungu er viðeigandi að tala um tungumálið og gott tilefni fyrir móðurmálshafa að leiða hugann að því hvernig þeir geti hjálpað til við máltileinkun þeirra sem læra málið. Við erum öll, móðurmálshafar, málhafar og málnemar, framtíð íslenskrar tungu. Við getum öll lagt okkar lóð á vogarskálina málinu til heilla.


Þið eruð öll hjartanlega velkomin!
Vinsamlega sendið okkur línu, upp á veitingar að gera, ef þið sjáið ykkur fært að
koma í gegnum islenska(hja)uw.is eða staðfestið í gegnum viðburðinn á Facebook.