Háskólasetur Vestfjarða verður 20 ára í ár. Fyrir 20 árum börðust Vestfirðingar fyrir töluvert mörgu, malbikuðum vegum, göngum, farsímasambandi, strandveiðum og strandsiglingum, öryggi, rafmagni á jólunum, og, jú, háskóla. Ekki meira né minna en það.
Það var þann 12. mars 2005 að 42 stofnaðilar komu saman á stofnfundi og stofnuðu sjálfseignarstofnunina Háskólasetur Vestfjarða með því háleita markmiði að hér risi háskóli. Háskólasetur Vestfjarða er því sannarlega grasrótarskóli. Stofnaðilar voru rannsóknarstofnanir sem starfa á svæðinu, opinberir aðilar, fyrirtæki og félög á svæðinu sem og allir háskólar landsins, sem voru níu talsins í þá daga. Hví ekki tíu og hví ekki einn þeirra á Vestfjörðum.
Síðan þá hefur margt vatn runnið til sjávar og Háskólasetur Vestfjarða vissulega ekki orðinn háskóli með stóru H-i, en er engu að síður virkur hlekkur í íslenska háskólalandslaginu og einn af vitum þess úti á landi. Nú eru alltaf upp undir 80 nemendur skráðir í nám hjá HA á vegum Háskólaseturs Vestfjarða, nú eru á öllum tímum, allt árið í hring, um 80 nemendur búsettir á Vestfjörðum á vegum Háskólaseturs, um 15 stöðugildi hafa orðið til vegna Háskólaseturs, ekki bara þau á launaskrá, heldur líka stöðugildi í samstarfi við aðrar stofnanir, stundakennarar og þau stöðugildi sem eru eiginlega verðmætust, stöðugildin sem leggjast að, sem eru hér eingöngu vegna tilvist Háskólaseturs, t.d. starfsmenn bandaríska samstarfsskólans, doktorsnemar sem kjósa að starfa hér eða rannsóknarmaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar.
Ákveðið hefur verið að halda ársfund í ár þann 14. mars 2025 til að minnast eiginlegs stofndags og heiðra öll þau sem í þá daga börðust fyrir stofnun háskólastofnunar á Vestfjörðum og létu engan bilbug á sér finna, þó mörgum, flestum fyrir sunnan, kunni að hafa fundist það fráleit ætlun. Í tengslum við ársfund og stofndag er stefnt að að halda opið hús í Vestrahúsi og afmælishátíð. Svo verður Háskólahátíð eins og árlega á þjóðhátíðardegi og ætli það verði ekki fleiri tækifæri til að halda hátíðlegt afmælisár.
Margt uppbyggilegt og margt skemmtilegt hefur gerst á þessum 20 árum, sem reynt verður að fanga í myndum og textum á árinu. Ef gestapennar leynast einhvers staðar gefi þeir sig fram og sömuleiðis ef einhver lumar á skemmtilegum þáttum úr sögu Háskólaseturs, til birtingar á vefsíðu uw.is og víðar.